FAQs

Algengar spurningar

Eru fiktvörurnar öruggar fyrir börn undir 5 ára?

Öryggisviðvörun: Vörurnar okkar eru ekki ætlaðar börnum undir 5 ára aldri þar sem þær geta innihaldið smáhluti sem geta valdið köfnunarhættu. Notkun er á ábyrgð foreldra og skal alltaf vera undir eftirliti fullorðinna.

Hversu lengi endast vörurnar?

Vörurnar eru 3D prentaðar og hannaðar til daglegrar notkunar. Ending fer eftir meðferð og notkun. Forðist að láta vöruna detta ítrekað eða setja hana í vatn.

Eru vörurnar umhverfisvænar?

Við notum PLA plast sem er lífbrjótanlegt við rétt skilyrði. Við reynum að lágmarka plastúrgang og endurnýtum efni þar sem það er mögulegt.

Hvað tekur langan tíma að vinna pöntun?

Pöntun er yfirleitt unnin innan 2–5 virkra daga (mán–fös). Sérpantanir geta tekið lengri tíma.

Bjóðið þið upp á fría heimsendingu?

Já! Við bjóðum fría heimsendingu á pöntunum yfir 10.000 kr innan Íslands.

Get ég sérsniðið lyklakippuna með nafni og símanúmeri?

Já, við bjóðum sérsniðnar endurskins lyklakippur með nafni barns og símanúmeri foreldra. Sláðu inn upplýsingarnar í reitinn við pöntun.

Hvað geri ég ef varan kemur skemmd?

Hafðu samband innan 7 daga frá móttöku og sendu myndir af vörunni og umbúðum. Við metum málið og sendum nýja vöru eða inneign ef við á.

Get ég skilað vöru?

Vegna þess að vörurnar eru handunnar og oft sérsniðnar eru allar sölur endanlegar nema varan sé gölluð eða skemmd við afhendingu.